Ari Eldar og Freyja Bóel
Hjartagullin
Ari Eldar er flottur 7 ára strákur í 2.K í Vesturbæjarskóla. Ari er greindur með dæmigerða einhverfu og fær því stuðning í skólanum frá henni Ingu stuðningfulltrúa. Hann fer í atferlisþjálfun sem er það sem notað er til að kenna Ara nýja færni. Ari Eldar fer líka einu sinni í mánuði til stuðningforeldris síns sem er hún Steinvör vinkona okkar og það finnst honum voða gaman. Hann er æðislega hress og skemmtilegur strákur sem er fljótur að læra og tileinka sér nýja hluti. Búinn að læra að lesa og er meira að segja farinn að læra smá ensku. Hann er augasteinn og gullmoli og við fjölskyldan erum svo þakklát fyrir að fá að kynnast þessum heimi sem einhverfan er með honum.
Freyja Bóel er frábær stelpa með bein í nefinu. Hún er á Fiskalandi á Hagaborg og þar finnst henni gaman að vera. Freyja er góð og ljúf stelpa og rosalega dugleg að leika sér. Hún er vinkona allra og sáttfús og sanngjörn við vini sína. Hún er frábær litla systir og dásamleg dóttir. Við þökkum fyrir að hún hafi sitt skap því það hefur alltaf verið til þess að hún gleymist ekki eitt augnablik þegar verið er að ræða um og skoða hvað er hægt að gera til að ná fram sem mestum framförum hjá bróður hennar. Hún er snillingur og yndisdúfa.
Systikinin eru mjög góðir vinir, þó stundum slettist upp á vinskapinn eins og vill vera hjá systkinum.
Foreldrar okkar eru búnir að læsa myndaalbúminu okkar en lykilorðið er nafnið á hundinum okkar sáluga (ekki með íslenskum stöfum þó svo að allt fólkið okkar í útlöndum geti fylgst með)

Ari Eldar: Ég fæddist í Hreiðrinu á Landspítalanum 24. október 2003 kl. 16.38. Ég var ekkert að flýta mér í heiminn, ég átti að koma 13. október en mér leið bara svo vel í bumbunni á mömmu svo ég ákvað að kúra þar í nokkra auka daga. Fæðingin gekk vel, tók um 14 tíma frá fyrstu verkjum. Ég var um 15 merkur (3765gr) og 53 cm og með 37 cm í höfuðmál. Pabbi var hjá mömmu þegar ég var að koma í heiminn, það var nú líka eins gott því mömmu fannst þetta ekkert þægilegt. Ég er fyrsta barn foreldra minna sem heita Katrín Hrefna Jóhannsdóttir (82) og Guðjón Haukur Jóhannsson (80) og að sjálfsögðu eru þau stoltustu foreldrar í heimi.
Freyja Bóel: Ég fæddist í Hreiðrinu á Landsspítalanum þann 20. september 2006 kl. 7.28. Mér leið líka óskaplega vel í mömmu bumbu eins og stóra bróður mínum og ákvað að kúra mér þar í 10 auka daga. Fæðingin gekk ótrúlega vel og hratt fyrir sig og frá fyrstu verkjum og þangað til ég var komin í mömmu fang liðu ekki nema milli 5 og 6 klukkutímar. Pabbi var hjá mömmu þegar ég kom í heiminn og hún hefði ekki getað þetta án hans. Ég var 16,5 merkur (4120 gr) og 53 cm með 36,5 cm höfuðmál. Foreldrar mínir eru óskaplega morntin með mig, og finnst frábært að eiga bæði stelpu og strák......enda erum við svo frábær bæði tvö.
ViÐ ERuM Sko alGJöRIr SólARGEIsLAr Og fOReldRAr OkkAR gjÖRSAMleGA dÝRka oKkuR!!!!!!!!
Svona er nafnið hans Ara Eldars fallbeygt:
Hér er: Ari Eldar
Um: Ara Eldar
Frá: Ara Eldari
Til: Ara Eldars
Svona er nafnið hennar Freyju Bóelar fallbeygt:
Hér er: Freyja Bóel
Um: Freyju Bóel
Frá: Freyju Bóel
Til: Freyju Bóelar
ÁÐUR EN ÉG VARÐ MAMMA
Áður en ég varð mamma borðaði ég
matinn á meðan hann var heitur, gekk
í hreinum fötum og gat spjallað í
rólegheitunum í símann.
Áður en ég varð mamma gat ég
farið seint í háttinn, sofið út um
helgar, greitt mér daglega og gengið
um íbúðina án þess að stíga á leikföng.
Áður en ég varð mamma velti ég
því aldrei fyrir mér hvort
pottaplönturnar á heimilinu
væru eitraðar.
Áður en ég varð mamma hafði
enginn kúkað, pissað eða ælt á mig.
Áður en ég varð mamma hugsaði ég
skýrt, hafði fullkomið vald yfir
líkama mínum og tilfinningum
og svaf alla nóttina.
Áður en ég varð mamma hafði ég
aldrei haldið grátandi barni föstu til
þess að læknir gæti sprautað það
eða tekið úr því blóðprufu.
Áður en ég varð mamma hafði ég
aldrei brostið í grát við að horfa í
tárvot augu og þekkti ekki þá
hamingjuflóðbylgju sem getur
sprottið af einu litlu brosi.
Áður en ég varð mamma sat ég
aldrei langt fram á nótt og horfði á
barn sofa eða hélt á sofandi barni
vegna þess að ég tímdi ekki að leggja
það frá mér.
Áður en ég varð mamma vissi ég
ekki hvað ein lítil vera getur haft
mikil áhrif á líf manns og hversu
óendanlega sárt það er að geta ekki
kippt öllum vandamálum í lag.
Áður en ég varð mamma vissi ég
ekki að ég gæti elskað svona heitt og
hversu dásamlegt móðurhlutverkið væri.
Áður en ég varð mamma þekkti ég
ekki þetta einstaka samband móður
við barn sitt og gleðina sem fylgir
því að gefa svöngu barni brjóst.
Áður en ég varð mamma vaknaði ég
ekki tíu sinnum á nóttu til þess að
aðgæta hvort allt væri ekki
örugglega í lagi.
Áður en ég varð mamma hafði ég
ekki kynnst hlýjunni, kærleikanum,
sársaukanum og ævintýrinu sem fylgir
því að eiga barn.
Ég brosi af því að ég er mamma þín, ég hlæ vegna þess að það er ekkert sem þú getur gert við því.